Leikhúsnámskeið

Submitted by dianag@arborg.is on Tue, 05/10/2022 - 14:18
Image
leikhus

Leikhúsnámskeið

Leikfélag Selfoss verður að venju með námskeið fyrir börn og unglinga í leiklist. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöruggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmiskonar leiklistaræfingar og spuna og unnið að eflingu sjálfstrausts, gleði og jákvæðni. Að þessu sinni verða sex leikhúsnámskeið fyrir aldurshópinn 7–13 ára (fædd 2009-2015).

 

Öll námskeiðin okkar verða haldin í leikhúsinu okkar, semsagt Litla leikhúsið við Sigtún. 

Verð er 10.000 kr., innifalið er síðdegissnarl.

 

Skráningar í netfangið sumarnamskeid@leikfelagselfoss.is

 

Með skráningu þarf að fylgja:

•Nafn og kennitala nemanda

•Nafn og símanúmer forráðamanns

•Ef viðkomandi er með eitthvað ofnæmi er gott að taka það fram

 

Námskeiðin verða eftirfarandi vikur:

Vikuna 13. júní – 16. júní kl. 10:00 – 15:00, mánudag til fimmtudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 14:00 þann 16. júní. Haldið í litla leikhúsinu við Sigtún.

Vikuna 20. júní – 24. júní kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 24. júní. 

Vikuna 27. júní – 1. júlí kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 03. júlí. 

 

Vikuna 4. júlí – 8. júlí kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 8. júlí. 

 

Vikuna 11. júlí – 15. júlí kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 15. júlí.

Vikuna 25. júlí – 29. júlí kl. 09:00 – 13:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 12:00 þann 29. júlí. 

 

Leiðbeinendur á námskeiðunum eru Guðný Lára Gunnarsdóttir, Sigríður Hafsteinsdóttir, Daníel Logi Róbertsson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Kristbjörg Sigtryggsdóttir, Birgitta Brynjarsdóttir og Halldóra Eiríksdóttir

 

 

Staður