Reiðskóli Sleipnis og Katrínar Evu

Submitted by Dagbjört on Mon, 05/08/2023 - 15:02
Image
reiðskóli sleipnis

Reiðskóli Sleipnis og Katrínar Evu


Reiðskóli Sleipnis og Katrínar Evu verður haldinn í Vallartröð 6 á Selfossi í sumar,
umsjónarmaður er Katrín Eva Grétarsdóttir. Katrín Eva er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á
Hólum.


Börnin læra grunnatriði í hestamennsku. Stuðst verður við leiki og gleði til að bæta samhæfingu, ásetu
og færni hjá hverjum og einum. Farið verður í útreiðartúra ásamt uppákomum í reiðhöll. Innifalið í
verði er aðgangur að traustum og góðum hesti, reiðtygjum og hjálmi.


Skráning er hafin á reidskoli@sleipnir.is og lýkur 4 júní
Koma þarf fram nafn og aldur barns, einnig e-mail, kennitala og símanúmer greiðanda.
Vinsamlegast tiltakið við skráningu ef það er eitthvað sem umsjónarmaður þarf að vera meðvitaður
um hvað varðar heilsu eða getu viðkomandi barns.


Verðskrá
5 daga námskeið = 15.000
10 daga námskeið = 30.000

6-9 ára 5 daga

  • 12-16 júní 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00
  • 26-30 júní 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00
  • 3-7 júlí 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00
  • 10-14 júlí 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00
  • 17-21 júlí 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00
  • 24-28 júlí 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00
  • 31 júlí - 4 ágúst 09:00 - 10:00 og 13:00 - 14:00


9 ára og eldri 5 daga

  • 12-16 júní 10:15 - 11:15 og 14:15 - 15:15


9 ára og eldri 10 daga

  • 26 júní -7 júlí 10:15-11:45 og 14:15-15:45
  • 10-21 júlí 10:15-11:45 og 14:15-15:45
  • 24 júlí - 4 ágúst 10:15-11:45 og 14:15-15:45
     
Staður
Tölvupóstur