
Sköpunar- og hugleiðslunámskeið fyrir börn 6-12 ára í SKRÚFUNNI Eyrarbakka!
Námskeiðin eru vikulöng og þar verða sköpuð listaverk úr náttúrunni ásamt því að læra fallegar hugleiðsluæfingar.
Leiðbeinendur eru Sigrún Þuríður Runólfsdóttir eigandi SKRÚFUNNAR (grósku- og sköpunarmiðstöðvar á Eyrarbakka) og Jóna Lilja Guðjónsdóttir Yoga Nidra kennari og höfundur barnahugleiðslubókarinnar Kristalsfjallið.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að skapa innri vellíðan með skemmtilegri og fjölbreyttri sköpun (þar sem leitað verður í náttúruna) og notalegum hugleiðsluæfingum. Að auki fær hver og einn þátttakandi námskeiðsins yndislegu barnahugleiðslubókina Kristalsfjallið að gjöf.
Námskeiðin eru eftirfarandi:
Námskeið 10-12 ára.
11.-15. júlí klukkan 13-16 (Börnunum er velkomið að vera hjá okkur til klukkan 17 ef á þarf að halda).
Samtals fimm dagar.
Verð 24.900 krónur.
Síðdegissnarl er innifalið í verði.
Skráning fer fram með skilaboðum á instagram/facebook eða með því að senda póst á netfangið skrufan@skrufan.is.