Sumar 2022- Dansakademían

Submitted by dianag@arborg.is on Wed, 05/04/2022 - 09:56
Image
3-6

5-6 ára framhalds- og nýnemar (börn fædd 2016-2017)

Tímabil: 16.maí - 17.júní

Mánudagar kl.16:15-16:55

Verð: 9.900.-

Hvar: Í húsnæði Dansakademíunnar, Eyravegi 38

Skráningarsíða: https://www.sportabler.com/shop/dansakademian/jazz/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6ODcyNw==?

Lýsing:

Blandað sumarnámskeið fyrir börn sem hafa stundað dans og fyrir þá sem vilja prófa dans. Í tímunum fyrir 5-6 ára reynum við að halda foreldrum utan danssalsins og leyfa börnunum að koma ein í tímann til að efla sjálfstæði þeirra. Kennarar eru Kristín Hanna og Dóra Rún.

Í tímunum er lögð áhersla á dansgleði og skemmtun. Við örvum skilningarvitin með litum, takti, leik og notum ímyndunaraflið til að kanna hreyfingarnar okkar. Tímarnir eru 40 mínutur að lengd þar sem lagður er grunnur í jazzballett tækni ásamt skapandi dansi.

 

*Lágmarksskráning þarf að nást til þess að námskeið fari í gang. Skráning er bindandi og námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd eftir að námskeið er byrjað.*

 

Hægt er að hafa samband í tölvupósti eða á Facebook síðu skólans ef að þið eruð með einhverjar spurningar, dansakademian@dansakademian.is og www.facebook.com/dansakademian

Staður